Bollukaffi.
Mánudagurinn 7.mars var haldinn hátíðlegur að vanda hér á Kleppsmýravegi 8, með bollukaffi og tilheyrandi kræsingum. Þrátt fyrir leiðinda veður og erfiða færð létu starfsmenn sólarræstingar það ekki stoppa sig í að koma og þiggja bollur af hinum ýmsu gerðum.
