Eftirminnileg kvöldstund á jólahlaðborði Sólarræstingar
Um miðjan desember fór starfsmannafélag Sólarræstingar í veglegt jólahlaðborð á Hilton þar sem landsþekkta kokkaliðið á VOX Restaurant hélt veislu fyrir bragðlaukana. Sigga Beinteins söng ljúfa jólatóna og Daddi Diskó hélt skemmtuninni svo áfram fram á kvöld með nokkrum vel til völdum sveiflum á gólfinu. Mæting var góð og virtust menn skemmta sér konunglega við borðhaldið og nutu félagsskapsins. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af jólagleði starfsmanna 12 desember 2009.
Okkar allra bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári. Þökkum fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.




