Fjölbreytt menntun starfsfólks.
Við hjá Sólar státum ekki einungis af duglegu og samviskusömu starfsfólki, heldur er menntun starfsmanna gríðarlega fjölbreytt. Stór hluti starfsmanna fyrirtækisins kemur frá Póllandi og Litháen. Einn af nýjum starfsmönnum fyrirtækisins er Arnoldas Autukas frá Litháen, hann hóf störf hjá fyrirtækinu í nóvember sl. sem lagerstjóri og bílstjóri. Arnold sem er lögreglumaður að mennt hefur búið á Íslandi síðastliðin 6 ár ásamt eiginkonu sinni, eiga þau son 1.árs gamlan. Þrátt fyrir að hafa lokið námi í lögregluskóla í Litháen fær Arnoldas menntun sína ekki metna hér á landi, þarf að bæta við sig menntun í Lögregluskólanum og til að fá inngöngu í hann þarf hann að hafa íslenskan ríkisborgararétt. Ríkisborgararéttur fæst eftir 7 ára búsetu. Eiginkona Arnoldas, Sabina er tæknifræðingur, hún hefur fengið viðurkenningu á sinni menntun en vinnur þó ekki við þá grein. Sabina byrjaði sem verkstjóri í landvinnslu hjá HB Granda, er nú starfsmannastjóri hjá fyrirtækinu. Arnoldas hefur notað tímann sinn á Íslandi vel og talar reiprennandi íslensku auk litháensku, pólsku, ensku og rússnesku.Hann hefur nýtt tíma sinn hér á landi vel, útskrifaðist af skrifstofubraut frá Menntaskólanum í Kópavogi í maí 2011. Arnold leggur nú stund á rússnesku, sögu og menningu auk stjórnmálafræði í Háskóla Íslands. Það vakti athygli ljósmyndara þegar lagerstjórinn mætti spariklæddur til vinnu á miðvikudegi. Ástæðan ekki einungis að Sólar bauð starfsmönnum í jólakaffi, nei Arnold var nýkominn úr prófi í rússnesku þar sem hann hafði fengið 9. Ekki slæmt að hafa svo glæsilegan fulltrúa meðal okkar og hver veit nema þessi þrítugi lögreglumaður sem lærir um sögu og menningu okkar auk stjórnmálafræði eigi eftir að setjast að á Bessastöðum í framtíðinni?
Arnoldas Autukas frá Litháen starfsmaður Sólar ehf.
Væri menntun starfsmanna nýtt til þess sem við á væri mikil fjölbreytni, Það vakti forvitni eftir að hafa hitt Arnold nýkominn úr prófi, vinnandi 100% vinnu, hvaða menntun þeir 8 starfsmenn sem staddir voru í jólakaffi Sólar hefðu. Ungt, öflugt fólk sem hefur yfirgefið heimaland sitt til að freista gæfunnar í nýju landi. Þrátt fyrir að kreppan sé það sem er mörgum efst í huga var það ekki hjá þeim. Mjög ánægð með að búa á Íslandi og lífsgæðin mikil á miðað við í þeirra heimalandi. Eitthvað sem undrar okkur án efa mörg sem sjáum ekki alltaf það góða í "garðinum okkar". Mörg okkar ættu kannski að taka þessa frábæru einstaklinga til fyrirmyndar og taka eftir því hve góðu samfélagi við lifum í.

Fv. Aneta Kownocka viðskiptafræðingur, Aneta Wlodarozyk hagfræðingur, Aneta Rukszos kokkur, Agata Knosiak stjórnmálafræðingur, Katanyna Machlowska matvælafræðingur, Bartosz Knasiak ljósmyndari.