image description

Framkvæmdasvið Hafnarfjarðar velur I-vax kerfið

Framkvæmdasvið Hafnarfjarðar flutti á dögunum í nýtt og glæsilegt húsnæði á Norðurhellu 2.  Húsnæðið er allt hið glæsilegasta og mun hýsa alla starfsemi framkvæmdasviðsins.  Hafnarfjarðarbær hefur verið leiðandi í umhverfismálum sveitarfélaga.  Því hafa þau í samvinnu við Sólarræstingu ákveðið að nota Ivax aðferðina á gólfin.  Ivax er umhverfisvæn ræstingaraðferð sem Sólarræsting og Hafnarfjarðarbær hafa verið að innleiða í nokkrum skólum bæjarins með góðum árangri.  Ivax kerfið byggist upp á Svansmerktum umhverfisvænum efnum sem með reglulegri notkun gera gólfbón óþarft.  Vart þarf að taka fram að með þessari aðferð sparast bæði peningar og gæði þrifanna aukast heldur einnig sparast mikið af bónefnum og leysiefnum sem annars hefði þurft að nota.

 

Daiva Leliené og Agata T. Siek frá Sólarræstingu ásamt Jóni Bergsveinssyni frá framkvæmdasviði, við opnun nýju byggingarinnar



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is