Fréttablað Sólarræstingar
Marsmánuður til lukku
Í byrjun mars 2010 var formlega gefið út Fréttablað Sólarræstingar og sent til viðskiptavina fyrirtækisins sem og annara aðila. Í fréttabréfinu eru greinar og upplýsingar sem tengjast Sólarræstingu, afhendingu Umhverfisviðurkenningar, þegar Sólarræsting fékk Svansvottunina, starfsmannaviðtal og fleira. "Reykjavíkurborg metur umhverfismerki mikils og því ákváðum við að leita til Sólarræstingar. Við hjá Umhverfis- og samgöngusviði erum mjög ánægð með þjónustu Sólarræstingar. Starfsfólkið er vingjarnlegt, þjónustan góð og auk þess skilja efnin ekki eftir sig sterka hreinsiefnalykt. Umhverfisvottun Sólarræstingar styður síðan innleiðingu á vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi Umhverfis- og samgöngusviðs sem stefnt er að á þessu ári” Eygerður Margrétardóttir, Framkvæmdastýra Stefnumótunar og þróunar, Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar.

Myndin sýnir sviðsstýru Umhverfis- og samgöngussviðs Reykjavíkurborgar kynna umhverfisstefnu sviðsins fyrir nokkrum starfsmönnum. Hún er lengst til hægri og heitir Ellý Katrín Guðmundsdóttir. Sama dag hættu starfsmenn sviðsins að nota ruslafötur undir skrifborðum