Fréttir af fyrirtækinu
Starfsfólk fyrirtækisins þurfti að sjá á bak stofnanda þess, Einari Ólafssyni, eftir 5 ára markvissa og árangursríka uppbyggingu fyrirtækisins en hann lést í apríl 2007 eftir erfið veikindi. Einar hafði þá þegar lagt grunninn að því að Sólarræsting fengi leyfi til að nota umhverfismerkið Svaninn. Sú vinna var komin á góðan rekspöl í öllum verkferlum og undirbúningi við fráfall hans.
Það var svo í ágúst 2007 sem Sólarræsting fékk Svaninn formlega afhentan af umhverfisráðherra, Þórunni Sveinbjarnardóttur. Svanurinn krefst ekki aðeins þess að notuð séu umhverfisvæn ræstiefni, einnig þurfa gæði að vera tryggð með ákveðnum verkferlum. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, ánægja viðskiptavina okkar er til marks um það.
Það er markmið Sólarræstingar að vaxa og dafna í gæðum sem og auknum fjölda viðskiptavina. Nú þegar hafa bæst við margir nýir viðskiptavinir á síðustu mánuðum, og verður að segjast að mikil ánægja ríkir um störf fyrirtækisins í hvívetna. Sólarræsting stefnir að því að verða eitt af leiðandi fyrirtækjum á Íslandi á sínu sviði og hefur alla burði til að svo megi verða.
Við horfum bjartsýn til framtíðar og hlökkum til að takast á við ný verkefni á nýju ári.
Gleðilegt nýtt ár!