Gaman saman
Þann 9. desember var haldið hið árlega jólakaffi Sólarræstingar að Kleppsmýrarvegi 8. Starfsfólk og fjölskyldumeðlimir nutu kræsinga sem þar voru í boði, ilmandi smákökur, konfekt og dísætar jólakökur.
Jólastemmningin leyndi sér ekki þar sem mikið var um hlátrasköll og fólk skiptist á hugmyndum að jólagjöfum, föndri og uppskriftum. Einnig var starfsmönnum fært veglegar jólagjafir sem munu eflaust gleðja margan um hátíðarnar og vonandi að allir geta notið. Takk öll fyrir frábæran dag og sjáumst hress í jólahlaðborðinu góða næstkomandi helgi.
Jólakaffi Sólarræstingar



