Hætt að nota plastpoka
Við hjá Sólarræstingu erum sífellt að reyna bæta okkur í umhverfismálum. Partur af því er að sjálfsögðu að líta í eigin barm og sjá hvað við getum gert betur. Á síðasta ári ákváðum við að prófa að hætta að nota plastpoka í ruslatunnurnar hérna á skrifstofunni. Auðvita fylgdu þessu smá aðlögun af okkar hálfu, ekki var lengur hægt að henda matarúrgöngum í ruslið og þurfti að fara með hann í eldhúsið. Að öðru leiti hafði þetta ekki mikil áhrif því við endurvinnum allan pappír og því var ekki mikið í ruslakörfunum.
Árangurinn var frábær, á okkar 7 manna skrifstofu spöruðust á einu ári um 730 pokar! Þetta eru mörg kíló af hreinu plasti sem hefðu annars farið beint á haugana. Á stærri skrifstofum með hundruðum manna er sparnaðurinn að sjálfsögðu enn þá meiri. Bæði peningalega og fyrir náttúruna.
Ef þið hafið áhuga á að prófa þessa lausn á ykkar skrifstofu þá endilega hafið samband og við komum því í verk.