image description

Húsráð

Við hjá Sólarræstingu höfum alltaf hlustað á mömmur og ömmur okkar í gegnum tíðina og þær kunna svo sannarlega vel til verka þegar kemur að heimilisstörfum.                                                                   

Hér ætlum við að uppljóstra nokkrum einföldum og umhverfisvænum leyndarmálum sem virka vel.

Þegar verið er að þrífa baðflísar og aðra gólffleti er mjög gott að setja smá edik út í vatnið og á það sérstaklega vel við ef það er mikið af fínu ryki eins og t.d. eftir iðnaðarmenn.

Einnig er hægt að nota edikið til að losna við vonda lykt úr ísskáp, þá er best að setja það í skál og inn í ísskápinn eða setja það í tusku og strjúka svo innan úr skápnum.          

Matarsódi er líka til margra nota, hann nýtist mjög vel sem alhliða ræstikrem, aðeins að blanda hann við örlítið vatn og þá ertu komin með lyktareyðandi og umhverfisvænt ræstikrem.    

Svo að lokum er mjög gott að kunna réttu ráðin við að vera hin fullkomna húsmóðir. Bræddu smá smjörlíki á pönnu og stráðu svo kanel yfir. Þá kemur þessi fína baksturslykt í allt húsið, svo berð þú fram kökuna sem þú keyptir í bakaríinu á leiðinni heim úr vinnunni og allir halda að þetta sé nýbakað!



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is