Hvalaskoðun, Kaffi París og Heiðmörk
Starfsmannafélag Sólarræstingar
Þann 15. maí síðastiðinn bauð Starfsmannafélag Sólarræstingar félögum sínum og fjölskyldum í dagskemmtun. Byrjað var á því að hittast við Reykjkavíkurhöfn klukkan 9 um morguninn og farið í hvalaskoðun. Skoðunin vakti mikla lukku enda fæstir sem höfðu áður litið hval augum. Veðrið var í kaldara lagi þegar Faxaflóinn var sigldur en allir voru vel búnir og mikil spenningur og kátína ríkti meðal manna. Viljum við þakka Eldingu fyrir frábæra þjónustu og aðstoð við þá sem urðu sjóveikir.



Eftir hvalaskoðunina var tekinn göngutúr í miðbæ Reykjavíkur og komið við á Kaffi París þar sem súpa, brauð, safi, kaffi, kakó og kleinur biðu eftir mannskapnum sem lét vel til sín taka enda svangir "sjómenn" á ferð. Spjall og notalegheit einkenndu Kaffi París og voru allir hæstánægðir með daginn að svo stöddu.


Að hádegismat loknum var ferðinni heitið í Heiðmörk þar sem Sólarræsting hefur farið árlega að gróðursetja tré í minningu Einars Ólafssonar stofnanda Sólarræstingu. Þökkum við öllum þeim sem lögðu hönd á plóg og fyrir frábæran dag, sjáumst hress.


