image description

I-VAX viðhaldskerfið

Fagmennska í fyrirrúmi með mjúkvaxi
I-VAX hefur verið notað með mjög góðum árangri í 20 ár og er í dag leiðandi viðhaldskerfi á Norðurlöndunum. I-VAX er umhverfisvæn ræstingaraðferð sem Sólarræsting hefur verið að innleiða í skólum, leikskólum og fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu með góðum árangri.
I-VAX kerfið byggist upp á Svansmerktum umhverfisvænum efnum sem með reglulegri notkun gera gólfbónun og bónleysun óþarfa og lágmarkar hættuna á duftun.
I-VAX viðhaldskerfið er notað jafnt á linoleum- og plastgólfefni jafnt sem önnur gólfefni. Þetta þýðir að hægt er að nota sömu efni og aðferðir á mismunandi gólfefni í einni og sömu byggingunni. Vart þarf að taka fram að með þessari aðferð sparast bæði peningar og gæði þrifanna aukast heldur einnig sparast mikið af bónefnum og leysiefnum sem annars hefði þurft að nota, einfalt og haghvæmt.
Taka skal fram að aldrei þarf að bóna eftir að I-VAX kerfið hefur verið tekið í notkun



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is