image description

ISSA Interclean - Amsterdam

Dagana 6.-9. maí síðastliðinn fór ISSA Interclean ræstingavörusýningin fram í Amsterdam.  Þetta er ein stærsta sýningin á vörum og þjónustu tengdum ræstingum í heiminum.  Nokkur  hundruð sýnendur og mörg þúsund sýningargestir.  Sólarræsting lét sýninguna ekki fram hjá sér fara og fóru framkvæmdastjóri og deildarstjóri ræstinga sem fulltrúar fyrirtækisins.

Margar spennandi nýjungar voru kynntar sem við vonum að munu nýtast okkur í framtíðinni.  Einnig voru margir spennandi fyrirlestrar í boði.  Fulltrúar okkar skelltu sér á nokkra þeirra, t.d. um framtíð ræstingabransans og einnig um græna ræstingu.  Eitthvað sem var sem rauður þráður í gegnum alla sýninguna.  Greinilegt að framtíðin liggur í umhverfisvænum efnum og aðferðum.



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is