image description

Jólahlaðborð 2011

 

Jólahlaðborð starfsmannafélags Sólar var haldið í Kornhlöðinni, Lækjarbrekku síðastliðið laugardagskvöld. Hlaðborðið svignaði undan kræsingum og áttu starfsmenn gott kvöld saman.  Starfsmenn sem unnið hafa hjá fyrirtækinu í fimm ár voru leystir út með glaðningi. Aneta Bondarow var kosinn trúnaðarmaður fyrirtækisins . Aneta Beata Wlodarczy  formaður starfsmannafélagsins sem haldið hefur utan um það með mikilli prýði mun brátt snúa sér að öðrum og mikilvægari störfum, barnauppeldi en þau hjónin hún og Jón Þór eiga von á sínu fyrsta barni í mars. Þær Aneta Bondarow og Katarzyna Machlowiec voru kosnar í stjórn starfsmannafélagsins. Óskum við Anetu velfarnaðar í því nýja hlutverk sem hennar bíður, leið og við þökkum henni fyrir frábær störf og óskum þeim Anetu og Katarzynu velfarnaðar í þeirra störfum. Eftir að gestir höfðu borðað dýrindis mat fór Þórsteinn framkvæmdastjóri yfir liðið ár í máli og myndum. Síðan tók við Tríóið Tríund sem skemmti fólki með söng og spili. 


 

Jólahlaðborð Sólar 2011 Kornhlöðunni Lækjarbrekku.

Aneta Beata Wlodarczyk formaður starfsmannafélagisins hafði í nógu að snúast.

Jón Þór og Gunnar

Skál!

Það var stutt í brosin

Þórsteinn framkvæmdastjóri kominn með eitthvað gott á diskinn sinn.

Erfitt að velja?

Söluteymið, Ólafur Einarsson og Hafdís Erla Bogadóttir

Eitthvað segir Daiva þarna sem gleður Þórstein.

Þórsteinn fór yfir liðið á í máli og myndum. Aneta og Daiva fylgdust spenntar með eða voru þær að gauka einhverjum upplýsingum að honum.

Jú......

Margt sem hefur gerst skemmtilegt þegar rifjað er upp.

Fólk skemmti sér vel við upprifjun Þórsteins.

Aneta Bondarow var kosin trúnaðarmaður Sólar ehf.

Aneta og Katarzyna nýjir félagar í stjórn starfsmannafélagsins

AneAneta Beata Wlodarczyk, formaður starfsmannafélagsins.

Ísabella þjónustustjóri kát að vanda

 

Vilma Sepanskiene

Daiva afhenti þeim sem unnið höfðu í 5 ár gjafabréf.

Barbara var ein af þeim sem leyst var út með glaðningi

Halina Sakowska hefur unnið í fimm ár hjá Sólar

Ólafur og Daiva eigendur Sólar, í baksýn má sjá Þórstein framkvæmdastjóra.

Aneta fékk hlýtt knús frá Daivu, fimm ára starf hjá fyrirtækinu og brátt á leið í fæðingarorlof.

Vilma, Judita og Ólafur, fimm farsæl ár að baki.

Skál fyrir því!

Lena og Daiva.

Ljúf stund

Kátir bræður


Gestir kunnu vel að meta mat og drykk

Gleði og gaman.

Skál!

Beggi og Hallur í Þríund að koma sér fyrir

Ásgeir Ævar í Þríund.

Beggi

Strákanir klikkuðu ekki á þessu og fólk fór strax að skemmta sér með söng....

Og meiri söng...

Og enn meiri söng....

og enn meiri söng...

Og líka dansi, fyrst voru þær bara tvær á gólfinu....

Svo kom sú þriðja....

Svo fjölgaði enn meir.

Og enn...

Júhú gaman...

Meiri dans...

Tangó...

Thomas

Suðræn sveifla á köldu Íslandi

Dans, dans...

Daman horfir yfir öxlina á herranum, hvað skyldi hún sjá?

Hringdans?

Gríðarlegt fjör á dansgólfinu.


Gunnar og Ísabella

Sveifla.


Ævar í Fasteignaumsjóninni og frú stíga léttan dans.

Síðan hélt hver til síns heima en sumir kíktu í bæinn og nutu jólastemingarinnar. Takk fyrir frábæra skemmtun!

 

 


 

 

 

 

 



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is