Jólakaffi Sólarræstingar
Kakó, kökur, vöfflur og nammi gott
Jólakaffi var haldið á skrifstofu Sólarræstingar í tilefni að komu jólanna. Var starfsfólki afhent jólagjafir og boðið í veglegt kaffiboð með kökum og öllu tilheyrandi. Fleiri mættu en undanfarin ár og vakti það mikla kátinu sem og lukku að hafa mannskapinn saman kominn og deila skemmtilegum jólasögum og misjöfnum siðum eftir löndum. Sumir mættu með börnin sín sem óneitanlega kom jólastemmningunni strax í gang. Þökkum fyrir skemmtilega samveru og vonum að sem flestir mæti í jólahlaðborðið góða 18. desember nk.

