image description

Jólaundirbúningurinn.

Það var líf og fjör á skrifstofu Sólar þegar starfsfólk skreytti og setti upp jólaljósin. Hið árlega jólakaffi Sólar verður haldið í húsnæði fyrirtækisins að Kleppsmýrarvegi 8, þann 14.desember frá klukkan 10 til 17. Þar munu verða boðnar góðar veitingar og starfsfólk glatt með góðum gjöfum.  Starfsmannafélagið býður starfsmönnum á jólahlaðborð á  Lækjarbrekku þann 17.desember, mun húsið opna klukkan 19:00.

 

Við skulum leyfa myndunum að tala sínu máli;

Daiva og Agata í sannkölluðu jólaskapi .

Er þetta góð hæð...Agata og Anteta.

Daiva, Aneta, Kristín og Agata.

Ólafur bakaði vöfflur og lagaði heitt súkkulaði ofaní  mannskapinn.

Við endum á ljóðlínum úr  ljóðinu Tólf eru synir tímans;


Þótt desember sé dimmur,

þá dýrðleg á hann jól.

Með honum endar árið 

og aftur hækkar sól.


Megi aðventan verða ykkur öllum góð.

 



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is