image description

Kynning á innleiðingu Svansins í samvinnu við Stjórnvísi

Nú í vikunni héldum við kynningarfund á innleiðingarferli Sólarræstingar á Svaninum, umhverfisvottun norðurlandaráðs.

 

 

Fundurinn var  haldinn á vegum umhverfis- og örygishóps Stjórnvísi en hópurinn hittist reglulega og kynnir sér umhverfisstarf fyrirtækja.  Fundurinn var vel sóttur og sköpuðust oft áhugaverðar umræður um umhverfismál fyrirtækja.  Kynningunni stjórnaði Þórsteinn, framkvæmdastjóri með dyggri aðstoð Daivu deildarstjóra ræstinga. Á fundinum kynnti Þórsteinn innleiðingar- og vottunarferlið og hvaða áhrif umhverfisstarfið hefur haft á fyrirtækið og árangur þess. Fundargestir voru spenntir fyrir þeirri framtíðarsýn sem Sólarræstingu stefnir að.  Til dæmis að minnka eða hætta notkun plastpoka hjá viðskiptavinum sínum, hjálpa til við að auka endurvinnslu og notkun umhverfisvænni aðferða eins og Ivax kerfissins.  Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og vonum að allir hafi haft gaman af.



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is