image description

Kynningarferð til Noregs og Svíþjóðar

Ef fyrirtæki vilja stækka og dafna er nauðsynlegt að vera alltaf að læra eitthvað nýtt.  Því reynum við hjá Sólarræstingu að stöðugt afla okkur nýrrar þekkingar.  Með það fyrir augum skelltu framkvæmdastjóri og deildarstjóri sér í kynningarferð til Noregs og Svíþjóðar í sumar.  Ætlunin var að kynna sér ítarlega notkun I-vax kerfisins ásamt því að kynna sér almenn ræstingarfyrirtæki í viðkomandi löndum.

 

Í Svíþjóð var stærsti spítali Gautaborgar heimsóttur, gríðarstórt ræstingarverkefni þar sem yfir 750.000 m2 eru þrifnir daglega með I-vax kerfinu.  Um 170 manns sjá um að halda öllu hreinu og vorum við gestirnir mjög hrifnir að allri aðstöðu og þjálfun sem starfsmenn fá.  Einnig var heimsóttur Chalmers, stærsti háskóli Gautaborgar sem er líka gríðarstór, einir 400.000 m2.  Það kom okkur líka skemmtilega á óvart að þar ræður ríkjum Íslendingur, Andrea Ingvadóttir Nabbing. Íslendingar eru alls staðar! 

Einnig var heimsótt stórt fyrirtæki í Skaraborg, Skaraborgstad.  Lennart, yfirmaður umhverfismála, sýndi okkur starfsemina sem fer fram um alla mið-Svíþjóð.  Þau státa einnig af Svaninum og ISO9000 og einnig ISO14000.  Mjög spennandi fyrirtæki þarna á ferð.
Í Noregi hittum við Ingrid og Paul sem reka ESP-Helse AS, ræstingarfyrirtæki sem sérhæfa sig í að þrífa elliheimili, um 16 stykki.  Mjög vel gert hjá þeim.  Nota I-vax kerfið á allt saman og voru oft með mjög skemmtilegar lausnir.

Í heildina var þetta mjög skemmtileg og fróðleg ferð.  Það sýnir manni að það er alltaf hægt að gera betur en við sáum líka að við komum ágætlega út í samanburði við frændur okkar.  Eftirlitskerfi og skipulag hjá okkur stenst fyllilega samanburð og einnig gæði ræstingana.  Við vonum að við getum nýtt okkur það sem við lærðum á næstu mánuðum og gerum gott enn betra.



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is