Málstofa um framtíð Svansins

Umhverfisstofnun hélt þann 26. febrúar 2009 málstofu um framtíð Svansins undir heitinu Ert þú í Svansmerkinu? Umhverfisstofnun hefur umsjón með umhverfismerkinu Svanurinn og stefnir nú að eflingu þess hér á landi á komandi árum. Málstofan var afar vel sótt en um 60 manns tóku þátt í því að koma verkefninu af stað.
Sólarræsting sem er eitt af 4 Svansmerktum fyrirtækjum á Íslandi var að sjálfsögðu á staðnum. Þórsteinn Ágústsson, framkvæmdastjóri, hélt erindi um áhrif Svansins á fyrirtækið. Hann fór yfir helstu þætti í innleiðingu Svansins og hverju þyrfti að breyta í rekstrinum til að öðlast vottunina. Niðurstaða hans var að vottunin hafi gerbreytt fyrirtækinu til hins betra. Gæði ræstinganna hafi aukist til muna, allt skipulag hafi batnað og að sjálfsögðu hafa áhrif okkar á umhverfið stórlega minnkað. Framtíðin væri í umhverfisvænni ræstingu.
