image description

Minningarlundur í Heiðmörk

Þann 1. júní s.l. var útbúinn minningarlundur í Heiðmörk til minningar um Einar Ólafsson, stofnanda Sólarræstingar ehf. Minningarlundinum var úthlutað af Skógræktarfélagi Reykjavíkur, í gegnum svokallað Landnemaprógram. Settar voru niður 200 plöntur og þar af ein stór fura, sem sambýliskona Einars heitins, Daiva Leliene, gróðursetti.

Í framhaldi af gróðursetningunni var grillað á vegum starfsmannafélagsins og mættu um 30 starfsmenn ásamt mökum og börnum og voru allir sammála um að dagurinn hefði heppnast vel í alla staði.





Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is