Nýir starfsmenn hjá Sólar.
Nýlega bættust tveir nýir starfsmenn á skrifstofu Sólar. Hafdís Erla Bogadóttir tók til starfa við sölu og markaðsmálin um miðjan ágúst, Halldóra Karlsdóttir í bókhald og innheimtu þann 1.nóvember. Báðar eru þær að austan, fæddar og uppaldar á Djúpavogi og liggja nú leiðir þeirra saman á ný eftir að hafa starfað saman hjá Kaupfélagi Berufjarðar á Djúpavogi fyrir um þrjátíu árum. Við bjóðum þær velkomnar til starfa og vonum að farsæld eigi eftir að fylgja störfum þeirra.

T.v Hafdís Erla Bogadóttir, t.h Halldóra Karlsdóttir