Sólar 10 ára árið 2012.
Sólar fagnar 10 ára afmæli árið 2012. Fyrirtækið sem Einar Ólafsson stofnaði árið 2002 hefur sannarlega vaxið fiskur um hrygg. Einar sem lést langt fyrir aldur fram, var einn í upphafi og sá um alla þætti rekstursins. Á þessum tíu árum hefur starfsmönnum fjölgað og eru nú 130. Sólarræsting var fyrst ræstingafyrirtækja til að fá leyfi til að nota Svaninn, opinbert umhverfismerki Norðurlandanna og leiðandi umhverfismerki í heiminum. Svanurinn gerir strangar kröfur um umhverfi, heilnæmi, gæði og virkni. Sólar ehf er eitt af stærstu ræstingafyrirtækjum á höfðuðborgarsvæðinu og rekur einnig öfluga fasteignaumsjón, fasteignavernd, eignaþjónustu, gagnavörslu og fasteignaeftirlit.

Einar Ólafsson stofnaði Sólarræstingu árið 2002. Fyrst um sinn sá hann einn um ræstingu og alla þætti fyrirtækisins sem nú tíu árum síðar telur um 130 starfsmenn. Fyrirtækið býður uppá alhliða ræstingaþjónustu og fasteignaumsjón.

Álfheimar 74, Glæsibær er ein af þeim verslunarmiðstöðum sem Sólar fasteignaumsjón sér um.