image description

Starfsmönnum boðið uppá heilsufarsskoðun.

"Góð heilsa gulli betri" segir máltækið og sannarlega eru þetta orð að sönnu. Góð heilsa er án efa einn mesti fjársjóður sem okkur hlotnast og mikilvægt að hlúa að. Mörgum finnst okkur heilsan án efa sjálfssögð og veltum því lítið fyrir okkur hverning líkamleg staða okkar er.  Starfsmannafélag Sólarræstingar stóð fyrir komu hjúkrunarfræðings frá Heilsuvernd sem bauð starfsmönnum uppá heilsufarsskoðun til að kanna ástand blóðfitu, kólesteróls, blóðþrýstings og fleiri grunna að góðu líkamsástandi. Einnig gaf hjúkrunarfræðingur fólki góð ráð um hvernig best að hlúa að heilsunni. Starfsmenn gátu einnig fengið flensusprautu ef það óskaði. Er þetta í annað sinn sem slíkt er gert og mæltist vel fyrir hjá þeim sem nýttu sér þessa þjónustu.

Jolanta Kaczynska starfsmaður Sólarræstingar lætur hér mæla blóðþrýsinginn.



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is