Stórt verkefni innan heilbrigðisgeirans!
Þann 1. júlí mun Sólarræsting byrja á stóru verkefni en það er Læknagarður í Vatnsmýrinni. Um er að ræða 5 hæða byggingu upp á sjö þúsund fermetra þar sem unnið er skv. "swep" kerfinu sem er viðurkennd ræstingaraðferð á sjúkrastofnunum og heilsugæslustöðvum. Sólarræsting hefur fengist við mörg verkefni í heilsugeiranum og er því fagnaðarefni að Læknagarður bætist á verkefnalistann hvað það varðar.