image description

Vistakstur

Að auka gæði okkar

 

Starfsfólk Sólarræstingar sem búið er ökutækjum til vinnu sinnar fóru nú á dögunum á námskeið í vistakstri.  Flestir bættu sig verulega í að aka sem vistvænast en sumir höfðu nú þegar tileinkað sér ýmsa þætti þess. Námið var bæði verklegt og bóklegt, fenginn var Marteinn Guðmundsson hjá Vistakstri til að þjálfa hópinn.

 

Vistakstur minnkar..

 


„Markmið námskeiðsins er einkum tvíþætt: Í fyrsta lagi að draga úr losun mengandi efna við akstur og í öðru lagi að spara kostnað með því að haga akstri þannig að ökutæki brenni minna eldsneyti. Sé þessum markmiðum náð hafa þau reyndar aðrar jákvæðar afleiðingar eins og minna slit á ökutækjum og öruggari og þægilegri akstur.“
-Marteinn G.

 


Þökkum fyrir okkur og verum dugleg við að gera tilveru okkar vistvænni.

 



Fyrri - Næsta
Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is