Vorgleði
Í byrjun maí hélt starfsmannafélag Sólarræstingar, okkar árlegu vorgleði. Hófst dagurinn á hestaferð með Íshestum í Hafnafirði. Eftir stórskemmtilegann og áfalla lausann reiðtúr var boðið upp á ljúffenga kjötsúpu og heimabakað brauð í húsakynnum Íshesta.

Þegar allir voru búnir að gæða sér á kræsingunum var haldið í Heiðmörk þar sem Sólarræsting hefur farið árlega að gróðursetja tré í minningu Einars Ólafssonar stofnanda Sólarræstingar.

Þökkum við starfsmönnum og fjölskyldum þeirra fyrir yndislegan dag.