World Class opnar í Háskólanum í Reykjavík.
Nýverið opnaði World Class nýja líkamsræktarstöð í húsnæði Háskólans í Reykjavík, Menntabraut 1 við Nauthólsvík. Sólarræsting sem alfarið sér um ræstingu við skólann bætti þar með við 200 m2 við opnun stöðvarinnar. Óhætt er að segja að þetta sé góð viðbót við annars glæsilegan skóla en þegar ljósmyndara bar að garði voru nemendur að æfa og sögðu það mikil þægindi að getað notað lausan tíma til að skreppa í ræktina.
Sólarræsting óskar World Class til hamingju með þennan áfanga.

Nemendur kunna vel að meta þau þægindi sem fylgir því að nýta lausan tíma til að stunda líkamsrækt.

Félagarnir Örvar og Gísli nemendur í HR voru mættir í ræktina. Þeir voru mjög ánægðir með að getað byrjað skóladaginn með því að lyfta og sögðu þessa viðbót vera "algjöra snilld".

Sólarræsting hóf samstarf við Háskólann í Reykjavík þegar nýtt húsnæði skólans var tekið í notkun, en kennsla hófst í glæsilegu húsnæði skólans við Nauthólsvík þann 11. janúar 2010. Sólarræsting hefur gæða og umhverfisvænni ræstingu að leiðarljósi og vel þjálfað starfsfólk.
Á myndinni eru starfsstúlkur Sólarræstingar sem starfa í HR.
Fv. Isabella, Aneta og Anna.