image description

Fasteignaumsjón

 

Fasteignaumsjón okkar býður upp á breiða, sveigjanlega og persónulega þjónustu í formi umsjónar og eftirlits með fasteignum viðskiptavina í því umfangi sem hentar hverjum og einum, allt frá lágmarkseftirliti yfir í framkvæmdastjórn og/eða heildar rekstur félaga. Eftirlit okkar nær í dag yfir um 80.000 m2 húsnæðis auk lóða þessara eigna. Það er ekki síður mikilvægt að hafa gott eftirlit með lóðum eignanna, sem eru andlit fyrirtækisins.

Skipta mætti fasteignaumsjón okkar í fjóra megin þætti; fasteignavernd, eignaþjónustu, gagnavörslu og fasteignaeftirlit.
 

  • Fasteignavernd er hugsuð fyrir fasteignir eða lóðir sem geta ýmist verið hálf- eða fullbyggðar og oft ekki í notkun. Þessar eignir þarfnast verndar og eftirlits til að tryggja að verðmæti eignanna sé viðhaldið. Við höldum utan um öll gögn (gagnavarsla) s.s. teikningar, stærðir, skráningartöflur og eignaskiptasamninga ásamt annarri sögu hverrar eignar. Við sjáum til þess að eignirnar séu rétt tryggðar og höfum eftirlit með eignunum og tryggjum að þær liggi ekki undir skemmdum með lágmarksaðgerðum.
  • Eignaþjónusta nær yfir gerð áætlana yfir viðhald og rekstur eignanna, sem miðar að því að viðhalda verðgildi eignanna, og eru áætlanir unnar út frá ástandsgreiningum og gerðar úttektarskýrslur í myndum og máli. Við gerum og höfum umsjón með þjónustusamningum tengdum eignum viðskiptavina okkar og leitum tilboða í alla þjónustuþætti þeirra eigna.  
  • Gagnavarsla felur í sér að bjóða upp á miðlæga vistun gagna tengdum eignum viðskiptavinarins s.s. teikningum, skráningartöflum, myndum og hverskonar skjölum er tengjast eignunum á beinan hátt. Hægt er að aðgangsstýra ákveðnum hlutum svæðisins í vistun eða skjölum þess í gegnum öflugan eignaumsjónarvef okkar. 
  • Fasteignaeftirlit er svo reglubundið eftirlit með eignum í okkar umsjá s.s. orku-eftirlit og ráðgjöf, framkvæmdaeftirlit, umsjón með snjómokstri, söltun og lögbundnu eftirliti eigenda fasteigna með eldvörnum. 

Sólar fasteignaumsjón er með vaktsíma allan sólarhringinn og með aðgang að breiðu neti þjónustuaðila til að leysa hver þau mál som koma kunnu upp hverju sinni. 
 

Meðal verkefna okkar;

• Ástandsskoðanir
• Eftirlit
• Sólarhringsvakt
• Orkueftirlit – orkuráðgjöf
• Rekstrar og framkvæmdaáætlanir
• Umsjón þjónustusamninga
• Snjómokstur- söltun
• Eldvarnareftirlit.

Hafðu samband og láttu okkur gera þér tilboð þér að kostnaðarlausu.

Hafa samband

 

Eitt af verkefnum Fasteignaumsjónar er heildarrekstur Húsfélags Glæsibæjar.

 

Fyrir.

 

Eftir

 Fyrir.

 

Eftir.

 


Að veita sólarhringsvakt er hluti af fasteignaumsjón okkar. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is