image description

 

Sólveig segir........

 

Sælar stúlkur!

 

Við viljum allar dekra við okkur og enn meira þurfum við á því að halda í jólaösinni. Þreyttar eftir bakstur og jólastúss og meiri ástæða að huga að eigin líðan og kunna að slaka á. Ekki eru allar sem hafa tækifæri á að fara í heilsulind en auðvelt er að útbúa sitt eigið spa eða heilsulind heima og það á ódýran hátt.

Þá kemur saltið til sögunnar. Epsom salt má finna í öllum helstu heilsubúðum. Epsom salt er ríkt af magnesium súlfat og var notað til lækninga hundruð ára aftur og enn er það notað, nú meðal annars af Hollywood-stjörnunum sem búa sér til hin ýmsu fegrunarlyf úr saltinu. Svo stelpur mínar, hentar vel fyrir okkur húsmæðurnar! Mæli með að fá góð ráð hjá starfsfólki heilsubúðanna en ég ætla að gefa ykkur mín ráð sem hafa reynst mér einstaklega vel, ég smelli bóndanum í hreinsandi og slakandi Epsom-bað fyrir jólin og hann er alsæll. 

Slökunarbað: Setjið tvo bolla af Epsom salti saman við baðvatnið. Liggið í baðinu í minnst 12 mínútur, þrisvar í viku til að ná árangri. Til að njóta enn betur má setja nokkra dropa af góðri olíu í baðvatnið. 

Ef þið viljið enn betur njóta þess að endurnæra líkamann má blanda saman 2 bollum af Epsom salti, ¼ bolla af kókos eða annarri olíu, nudda varlega líkamann og losa þannig um dauðar húðfrumur. Skola síðan undir sturtunni.

Einnig er gott að nota þessa blöndu á fæturna og nudda vel hælana eftir að hafa legið í fótbaði í góðan tíma, jafnvel meðan skrifað er á jólakortin. 

Fyrir hárið er gott að blanda saman upphitaðri næringu ( hita undir vatnsbunu) á móti sama hluta af Epson salti. Dreifa yfir hárið og láta bíða í ca 20 mín. Síðan er skolað. 

Til að hreinsa andlitið vel má blanda ½ msk af Epson salti saman við hreinsimjólkina og nudda varlega. Hreinsa af með vatni og þerra.

Já það þarf ekki alltaf að kosta miklu til þegar á að gera vel við sig.

Svo getið þið fræðst meira um Epson salt hér


 

 Njótið vel elskurnar og munið að njóta aðventunnar við kertaljós og kósýheit!

Ykkar Sólveig

 

Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is