image description

Sagan

Sólarræsting var stofnuð af Einari Ólafssyni  í janúar árið 2002. Einar var mikill hugsjónamaður en hann lést langt um aldur fram 17. apríl árið 2007. Einar vissi vel að til að fyrirtækið mætti  blómstra væri gott  starfsfólk og góður vinnuandi lykilatriði og strax frá stofnun fyrirtækisins byggði hann starfsmannastefnuna á stjórnunargrunni sem nefndur er "Jákvæð styrking" en þar er  leitast við að styrkja starfsfólk fyrirtækisins með jákvæðri endurgjöf við hvert tækifæri. Þetta viðhorf er enn grunnurinn að starfsemi Sólar nú tæpum 10 árum síðar.  Umhverfismál voru Einari  einnig hugleikin og ein staðfesting þess er að í byrjun árs 2007 fékk Sólar fyrst ræstingafyrirtækja leyfi  til að nota norræna umhverfismerkið Svaninn.  Í apríl sama ár hlaut fyrirtækið „Kuðunginn“  umhverfisverðlaun Umhverfisráðuneytisins. Þau verðlaun voru sannarlega hvatning fyrir starfsfólk fyrirtækisins til að halda áfram því góða starfi sem unnið hafði verið í þeirri viðleitni Sólar að vera leiðandi  á sviði umhverfisvænna ræstinga auk þess  að bjóða  framúrskarandi þjónustu og skapa  traust og vellíðan hjá viðskiptavinum og starfsfólki.  Það má segja að málshátturinn „Oft verður tré úr mjúkum kvisti“ eigi vel við hjá fyrirtækinu sem byrjaði með einum starfmanni en telur  nú um 120 starfsmenn og heldur enn áfram að  vaxa  og dafna. 

Einar Ólafsson.

Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is