Svanurinn
Svaninnn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna og leiðandi umhverfismerki í heiminum. Svanurinn gerir strangar kröfur um umhverfi, heilnæmi, gæði og virkni. Markmiðið með merkinu er að stuðla að því að dregið verði úr umhverfisspillandi neyslu og minnka álag á umhverfið af völdum neytenda, ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins þar sem komandi kynslóðir hafa jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum
Norræni svanurinn tekur tillit til áhrifa vöru á umhverfið allan lífsferilinn, það er frá hráefni til úrgangs.
Mikilvægir áfangar sem náðust með Svansvottuninni 2007.
- Ræstingaefnum fækkaði úr þrettán efnum í fjögur og eru öll efnin svansmerkt.
- Minnkun á notkun glærra plastpoka , úr þrem tonnum í eitt tonn á ári.
- Allir fá sömu þjálfun og leiðbeiningar um hvernig ræsta skal.
- Öflugt gæðaeftirlit tryggir góðan árangur.
- Minni umhverfisáhrif.

