image description

Umhverfið

Að hugsa vel um umhverfið og bera virðingu fyrir náttúrunni er okkar hjartans mál. Sólar fékk fyrst ræstingafyrirtækja á Íslandi leyfi til að nota Svaninn opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Hefur gæða og umhverfisstarf nú  þegar skilað fyrirtækinu miklum árangri og hlaut Sólar Kuðunginn, umhverfisverðlaun Umhverfisráðuneytisins árið 2007. Við erum  alltaf vakandi fyrir nýjum tækifærum til að gera enn betur hvað umhverfisvernd varðar og leitumst við að fullnægja þeim kröfum sem gerðar eru til okkar í dag til að við getum sátt horft fram á veginn.

 

Sólar fékk fyrst ræstingafyrirtækja leyfi til að nota Svaninn opinbert merki Norðurlandanna. Á myndinni sést Þórsteinn Ágústsson framkvæmdastjóri taka við vottorði með þeirri staðfestingu úr hendi Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra.

Sólarræsting ehf – Kleppsmýrarveg 8 – 104 Reykjavík – Sími 581-4000 – solarehf@solarehf.is