
Golfmót Sólar 2026
Golfmót Sólar var haldið 10. september í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.
Golfmót Sólar var haldið þann 10. septembersíðastliðinn í Golfklúbbnum Keili á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Þetta var í þriðja sinn sem Sólar býður viðskiptavinum og birgjum til golfmóts, þar sem leikið er tveggja manna Texas Scramble.
Góð mæting var í mótið. Með okkur í ár voru starfsmenn og fulltrúar frá Stórkaupum, Hrafnistu, JBT Marel, Háskólanum í Reykjavík, PWC, H&S rafverktökum, Lagernum og Efniskaupum.
Það var frábær stemning á vellinum og greinilegt að allir skemmtu sér vel. Að móti loknu var haldið í golfskála Keilis þar sem þátttakendur settust saman yfir góðum mat, spjölluðu og verðlaun voru afhent.
Úrslit mótsins:
1. Helen Lilja Helgadóttir frá Sólar og Eggert Bjarnason frá Efniskaup
2. Ólafur Eggertsson frá Sólar og Eggert Ólafsson H&S rafverktakar
3. Hafsteinn Már Einarsson frá Pwc og Elías Kári Huldarsson frá Sólar
Nándarverðlaun og góðgerðarmál:
Nándarverðlaun voru veitt á hverri par 3 holu. Sá sem hlaut nándarverðlaunin fékk að velja góðgerðarmál sem Sólar styrkti. Alls voru fjórar par 3 holur í boði fyrir nándarverðlaun.
Hola 4 – Eggert Ólafsson frá H&S rafverktakar, sló 7,67 metrum frá holu. Ákvað hann að styrkja Börn með Krabbamein.
Hola 6 – Enginn náði nándarverðlaununum á þessari holu, en hópurinn kom sér saman um að styrkja Píeta-samtökin þess í stað.
Hola 12 – Eggert Ólafsson frá H&S rafverktakar, sló 3,37 metrum frá holu og ákvað að styrkja Ljósið.
Hola 17 – Guðríður Hjördís Baldursdóttir frá Lagernum, sló 4,58 metra frá Holu og ákvaðað styrkja Börn með krabbamein.
Að lokum var dregið úr skorkortum þátttakenda og var Gunnar Björgvinsson frá Háskólanum í Reykjavík sá heppni og hlaut útdráttarverðlaunin.
Við hjá Sólar viljum þakka öllum sem gáfusér tíma til að koma og eiga með okkur skemmtilegan dag á golfvellinum. Það var virkilega gaman að sjá hversu góð stemning skapaðist.
Við hlökkum til að taka á móti semflestum aftur á næsta ári!




