Láttu kirkjuna skarta sínu fegursta um jólin

Sólar býður kirkjum sérstök hátíðarþrif fyrir aðventuna og jólahátíðina.

November 3, 2026

Sólar býður kirkjum sérstök hátíðarþrif fyrir aðventuna og jólahátíðina. Framundan er annasamur en skemmtilegur tími í kirkjustarfinu þegar fólk kemur saman við messur, tónleika og hátíðlegar stundir. Nú er rétti tíminn til að huga að hátíðarþrifum fyrir aðventuna og jólin. Við hjá Sólar viljum gjarnan leggja okkar af mörkum til að skapa hreint og notalegt umhverfi fyrir kirkjugesti og létta um leið undir með starfsfólki kirkjunnar.

Hvort sem það eru bekkirnir sem þarf að þrífa, gólfin sem mættu fá góða yfirferð, anddyrið eða gluggarnir sem kalla á þvott – við þrífum það.

Hátíðarþrif fyrir kirkjur

Við bjóðum kirkjum sérstök hátíðarþrif þar sem hægt er að velja þá þjónustu sem hentar húsnæðinu og þörfum hverju sinni.

Þjónustan getur meðal annars falið í sér:

Þrif á kirkjuskipi og bekkjum.

Gólfþrif og teppahreinsun.

Þrif á anddyri, inngangi og kirkjutröppum.

Þrif á salernum og sameiginlegum rýmum.

Þrif á safnaðarheimilum.

Gluggaþvott og hreinsun glerflata.

Við sjáum um þrifin og aðstoðum ykkur við að undirbúa kirkjuna fyrir einn annasamasta tíma ársins. Hreinir gluggar, vel hirt gólf og snyrtileg kirkja setja fallegan svip á umhverfið og skapa notalega umgjörð um hátíðahald jólanna.

‍Við finnum lausn sem hentar hverri kirkju

Engar tvær kirkjur eru eins. Húsnæðið er mismunandi, starfsemin fjölbreytt og sumir fletir og innréttingar þurfa sérstaka umhirðu.

Við hjá Sólar leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð og skipuleggjum þrifin í samráði við starfsfólk kirkjunnar, með hliðsjón af húsnæðinu, starfseminni og með tilliti til þeirra viðburða sem framundan eru.

Ekki bara fyrir jólin

Kirkjurnar eru auðvitað ekki bara í notkun um jólin. Páskar, fermingar, tónleikar og aðrir viðburðir kalla líka á reglulega umhirðu húsnæðisins.

Hjá Sólar bjóðum við heildarlausn í ræstingum á einum stað. Hvort sem þörf er á reglubundnum ræstingum, sérhæfðum þrifum eða eitthvað óvænt sem gerist.  Við þrífum það.

Láttu kirkjuna skarta sínu fegursta um jólin

Hafðu samband og fáðu okkur í heimsókn til að meta aðstæður og gera tilboð í hátíðarþrif sem henta fyrir ykkar kirkju.  

Fáðu tilboð og láttu kirkjuna þína skarta sínu fegursta um jólin.

‍