
Við þrífum það
Hjá Sólar finnur þú fjölbreytta ræstingarþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og húsfélög. Daglegar ræstingar, gluggaþrif, teppahreinsun, gólfhreinsun, djúphreinsun, þrif á loftræstikerfum og stokkum, utanhússþrif og ýmis önnur sérhæfð verkefni.
Sumt þarf að þrífa á hverjum degi. Annað gleymist. Sumt gerist bara.
Hjá Sólar bjóðum við upp á fjölbreytta ræstingarþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og húsfélög. Hvort sem er um að ræða reglubundna ræstingu, sérhæfð þrif eða verkefni sem enginn sá fyrir - Við þrífum það.
Loftræstikerfið og stokkarnir sem á víst að þrífa árlega en gleymist alltaf.
Við þrífum það.
Öll borðin í fyrirtækinu sem eru eins og eftir tvöfalt barnaafmæli.
Við þrífum þau.
Tyggjóklessurnar á gangstéttinni sem minna einna helst á heimskort.
Við þrífum þær.
Hvíta listaverkið sem sílamávurinn skildi eftir á stóra glugganum á 4. hæð.
Við þrífum það.
Rauðvínsbletturinn í bókhaldsdeildinni frá því á föstudag – sem enginn vildi kannast við.
Við þrífum hann.
Handofna marokkóska teppið sem arkitektinn valdi í móttökuna.
Við þrífum það.
Á hverjum degi koma upp stór og smá verkefni hjá fyrirtækjum sem tengjast ræstingum. Sum eru hluti af daglegri ræstingu, öðrum þarf að sinna öðru hverju – og svo eru það verkefnin sem enginn sá fyrir.
Hjá Sólar færðu heildarlausn í ræstingum á einum stað.



