Sólar á Mannauðsdeginum

Sólar kynnir fjölbreytta ræstingarþjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir á Mannauðsdeginum í Hörpu 2. október.

September 30, 2026

Sólar kynnir fjölbreytta ræstingarþjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir á Mannauðsdeginum í Hörpu föstudaginn 2. október. Við verðum í Hörpuhorni og hlökkum til að hitta bæði núverandi og nýja viðskiptavini. Kíktu við hjá okkur í spjall, kynntu þér fjölbreytt þjónustuúrval Sólar, taktu þátt í happdrætti og taktu gulan glaðning með þér heim.

Á hverjum degi koma upp stór og smá verkefni hjá fyrirtækjum sem tengjast ræstingum. Sum eru hluti af daglegri ræstingu, öðrum þarf að sinna öðru hverju – og svo eru það verkefni sem enginn sá fyrir.

Hjá Sólar færðu heildarlausn í ræstingum á einum stað. Hvort sem um er að ræða reglubundna ræstingu, sérhæfð þrif eða verkefni sem enginn sá fyrir.

Tilboð í tilefni Mannauðsdagsins

Í tilefni Mannauðsdagsins býður Sólar ráðstefnugestum 15% afslátt af teppahreinsun fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Haustið er góður tími til að fríska upp á vinnustaðinn og djúphreinsun teppa getur gert mikið fyrir bæði útlit og ásýnd rýmisins.

‍Nýttu afsláttinn og bókaðu teppahreinsun fyrir 15. október 2026 með því að senda fyrirspurn hér fyrir neðan.

Fá tilboð í teppahreinsun

Taktu þátt í happdrætti Sólar

Kíktu við hjá okkur í Hörpuhorni, kynntu þér fjölbreytt þjónustuúrval Sólar og taktu þátt í happdrætti þar sem þú gætir unnið 30.000kr. gjafabréf frá Dineout.

Það fer enginn tómhentur heim frá okkur – því við verðum með gulan glaðning fyrir sýningargesti 💛

‍Sjáumst á Mannauðsdeginum!

‍