19. nóvember 2024
Á næstum dögum sendum við út okkar árlegu viðhorfskönnun. Hún er send á alla okkar viðskiptavini og er mikilvægt fyrir okkur að heyra frá viðskiptavinum hvernig þeim líkar þjónustan sem við veitum. Bæði hvað vel er gert og einnig hvar við getum bætt okkur.
Könnunin er framkvæmd af Prósent, sem framkvæmdi jafnframt eldri kannanirnar, og er gert ráð fyrir að hún standi yfir í tvær vikur. Tveir heppnir þáttakendur verða síðan dregnir út sem eiga möguleika á að fá bankakort að upphæð 15.000 kr.
Með fyrirfram þakklæti fyrir þátttöku.
Einar Hannesson framkvæmdastjóri