Jafnréttisáætlun Sólar ehf 2023 – 2026
Tilgangur
Hjá Sólar ehf starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks, af ólíku þjóðerni og með ólíkan bakgrunn. Jafnréttisáætlunin er sett fram samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr.150/2020, og annarra laga og krafna er snúa að jafnrétti.
Tilgangur áætlunarinnar er að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og þeirra sem eru með hlutlausa skráningu í þjóðskrá, sem starfa innan fyrirtækisins óháð því hvaða starfi þau sinna. Sólar ehf skuldbindur sig til að vera vinnustaður þar sem allt starfsfólk er metið á eigin forsendum, óháð kyni, þjóðerni, aldri, trúarskoðun eða öðru slíku.
Sólar ehf mun kynna áætlunina fyrir öllu starfsfólki enda mikilvægt að stjórnendur og starfsfólk sé meðvitað um mikilvægi jafnréttis í öllum störfum og verkefnum innan fyrirtækisins.
Jafnréttisáætlunin nær til allra starfsmanna Sólar ehf.
Sólar hefur einnig sett sér sérstaka jafnlaunastefnu.
Markmið
Sólar leggur áherslu á jafnan rétt kynja til launa, stöðuveitinga, starfa og þátttöku í nefndum og störfum meðal allra starfsstétta Sólar. Starfsfólk fyrirtækisins skal enn fremur njóta sömu tækifæra, réttinda og starfsaðstæðna óháð kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum eða öðrum þáttum. Sólar fékk jafnlaunavottun árið 2020 og hefur viðhaldið henni síðan skv. 7 gr. laga nr. 150/2020. Ár hvert verður unnið að viðhaldsvottun og þriðja hvert ár endurvottun.
Eftirfarandi eru markmið Sólar:
- Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf, óháð kyni.
- Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni.
- Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni.
- Lögð er áhersla á að starfsfólk geti samræmt vinnutíma og fjölskyldulíf eins og kostur er.
- Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna.
- Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustaðnum.