HÓTELÞRIF
Við veitum sérhæfða þjónustu í þrifum á hótelum. Allir verkliðir sem tengjast hótelþrifum eru á okkar herðum. Kostir úthýsingar hótelþrifa eru ótvíræðir og má það sjá á fjölda ánægðra viðskiptavina. Við bjóðum hæstu gæði, stöðugleika og gott utanumhald á öllum þáttum þegar kemur að þrifum á hótelum og hótelherbergjum. Settu verkið í hendur fagmanna og láttu okkur sjá um starfsmannamálin, m.a. afleysingar í veikindum og fríum. Með því að fá okkur sem verktaka færð þú aukinn tíma til að sinna rekstrinum.
Við sjáum um:
– ráðningu og þjálfun starfsfólks í hótelþrifum
– afleysingar vegna veikindadaga, sumarleyfa eða fæðingarorlofa starfsfólks
– stjórnunarkostnaðinn
– birgðahaldið
– ræstivörur og öll áhöld til ræstinga á hótelherbergjum
– þvott á tuskum og moppum
– vinnufatnað starfsfólks
– starfsmannatryggingar
– að kröfur Vinnueftirlitsins séu uppfylltar
Sólar var fyrsta ræstingafyrirtæki á Íslandi til að fá Svansvottun og erum við mjög stolt af því. Markaðurinn gerir auknar kröfur um umhverfisvæna hugsun og vottanir. Hótel í viðskiptum við Sólar getur kynnt viðskiptavinum sínum umhverfisvæna ræstingu.
Lögð er mikil áhersla á vellíðan starfsmanna og jákvætt viðmót því við vitum að gott starfsfólk skapar traust og vellíðan hjá viðskiptavinum okkar sem endurspeglast í viðmóti til viðskiptavina hótela. Við fylgjumst vel með ummælum viðskiptavina þeirra hótela sem við þjónustum á TripAdvisor, þau bera þess skýr merki að gestir taka eftir glaðlegu starfsfólki, hreinni hótelum og almennt betri gistingu.
Fáðu ráðgjöf og við gerum tilboð þér að kostnaðarlausu um hvernig hagræða megi í þínu fyrirtæki. Hafa samband