
Sólar er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri tíunda árið í röð
Sólar hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 hjá Keldunni og Viðskiptablaðinu, tíunda árið í röð.
Sólar hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 hjá Keldunni og Viðskiptablaðinu, tíunda árið í röð. Fyrirtækið hefur verið samfleytt á listanum frá árinu 2017 sem endurspeglar þann stöðugleika og trausta rekstur sem hefur einkennt Sólar um árabil. Aðeins 5,4% íslenskra fyrirtækja uppfylla skilyrði viðurkenningarinnar í ár.
Við hjá Sólar erum afar stolt af viðurkenningunni. Fyrir okkur er hún staðfesting á traustum rekstri en ekki síður þeim metnaði sem starfsfólk Sólar leggur í þjónustuna á hverjum einasta degi.
Viðurkenningin Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um rekstur og fjárhagslega stöðu.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að Sólar hljóti þessa viðurkenningu tíunda árið í röð. Góður árangur verður ekki til af sjálfu sér heldur er hann afrakstur vinnu starfsfólksins okkar sem leggur sig fram á hverjum degi. Við erum jafnframt þakklát viðskiptavinum okkar fyrir það traust sem þeir sýna okkur og fyrir að treysta okkur fyrir sínum vinnustöðum,“ segir Ingunn Margrét Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri Sólar.
Gildin okkar eru grunnurinn að árangri
Virðing, jákvæðni og fagmennska eru gildin sem við hjá Sólar vinnum eftir og eru leiðarljós í allri okkar þjónustu. Við leggjum áherslu á vönduð samskipti, fagleg vinnubrögð og að finna bestu lausnina hverju sinni fyrir viðskiptavini.
Þjónusta Sólar er gæðavottuð og við vinnum eftir viðurkenndum stöðlum með áherslu á fagmennsku, umhverfisvitund og öryggi.
Við lítum á viðurkenninguna sem hvatningu til að halda áfram að gera enn betur, þróa þjónustuna enn frekar og mæta síbreytilegum þörfum viðskiptavina okkar.
Hjá Sólar færðu heildarlausn í ræstingum á einum stað
Sólar býður upp á fjölbreytta ræstingarþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og húsfélög. Hvort sem er um að ræða reglubundnar ræstingar, sérhæfð þrif eða verkefni sem enginn sá fyrir - Við þrífum það.
Kynntu þér þjónustuna hér.
Hreinlega til fyrirmyndar.



