
Sólar hljóp til styrtkar Barna með krabbamein
18 starfsmenn Sólar tóku þátt í 10 km hlaupinu í Reykjavíkurmaraþoninu!
Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 til að styðja við bakið á krabbameinsveikum börnum og fjölskyldum þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega, og til að berjast fyrir réttindum þeirra gagnvart hinu opinbera. Á þeim vettvangi hefur náðst mikill árangur en enn er mikil þörf fyrir ýmiss konar stuðning. Það er áfall fyrir alla fjölskylduna þegar einn greinist með krabbamein og hún er allt í einu komin í stöðu sem enginn vill nokkurn tíma þurfa að vera í. Yfirleitt hættir a.m.k. annað foreldrið að vinna um tíma til að sinna veika barninu og verður fjárhagslegt áfall því í flestum tilvikum tilfinnanlegt.
Við erum ótrúlega stolt af þátttökunni, samstöðunni og gleðinni sem einkenndi daginn. Takk allir sem hlupu með okkur og létu góðan málstað njóta góðs af þetta sýnir hvað við getum gert saman þegar við stöndum þétt sem hópur.
.jpg)



