Sólar þakkar fyrir frábæran Mannauðsdag

Mannauðsdagurinn fór fram úr okkar björtustu vonum! Við þökkum frábærar móttökur, skemmtileg samtöl og mikinn áhuga á þjónustu Sólar.

October 14, 2026

Mannauðsdagurinn í Hörpu fór fram föstudaginn 2. október og óhætt er að segja að dagurinn hafi farið fram úr okkar björtustu vonum.

Það var frábært að finna fyrir þeim mikla áhuga sem gestir sýndu Sólar og fjölbreyttri þjónustu okkar. Fjöldi gesta leit við hjá okkur í Hörpuhorni, kynnti sér þjónustuna og átti við okkur góð samtöl um allt frá reglubundnum ræstingum og rekstrarvörum yfir í sérhæfðari verkefni.

Ekki skemmdi fyrir að gulu Sólar tuskurnar vöktu mikla lukku og fóru fjölmargir gestir heim með gulan glaðning. 💛

Við viljum þakka öllum sem komu við hjá okkur, bæði núverandi viðskiptavinum og þeim sem við vorum að hitta í fyrsta sinn. Það var einstaklega gaman að fá tækifæri til að spjalla, heyra hvað skiptir fyrirtæki máli þegar kemur að ræstingum og kynna um leið hvað Sólar hefur upp á að bjóða.

Hjá Sólar færðu heildarlausn í ræstingum á einum stað. Hvort sem um er að ræða reglubundna ræstingu, sérhæfð þrif eða verkefni sem enginn sá fyrir.

Kynntu þér heildarlausn í ræstingarþjónustu hér

‍Vinningshafi happdrættis Sólar

Fjöldi gesta tók þátt í happdrætti Sólar á Mannauðsdeginum þar sem í vinning var 30.000 kr. gjafabréf frá Dineout.

Dregið hefur verið úr skráningum og vinningshafinn er:

Erla María Árnadóttir frá Eimskip 🎉

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og vonum að gjafabréfið komi sér vel.

Tilboð á teppahreinsun gildir til 15. október

Í tilefni Mannauðsdagsins býður Sólar 15% afslátt a teppahreinsun fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Haustið er góður tími til að fríska upp á vinnustaðinn og djúphreinsun teppa getur gert mikið fyrir hreinleika og heildarásýnd vinnustaðarins.

‍Nýttu afsláttinn og bókaðu teppahreinsun fyrir 15.október 2026.

‍Fá tilboð í teppahreinsun

Að lokum viljum við þakka Mannauði fyrir glæsilegan viðburð og öllum þeim sem heimsóttu okkur fyrir frábærar móttökur, skemmtileg samtöl og góðan dag.

Takk fyrir okkur 💛

‍

‍