
Sólar verður á Verk og Vit
Leiðandi aðili í sérhæfðum ræstingum
Sérverkefnadeild Sólar
Sérverkefnadeild Sólar sinnir sérhæfðum þrifum og krefjandi verkefnum fyrir byggingarverktaka, fasteignafélög, stofnanir og fyrirtæki. Deildin vinnur lausnamiðað þar sem hvert verkefni er metið sérstaklega og valin sú aðferð, búnaður og mannafli sem hentar best.
Sérverkefni snúast ekki aðeins um hefðbundin þrif heldur um að leysa verkefni með faglegri og markvissri nálgun. Unnið er í nánu samráði við verkkaupa til að tryggja að niðurstaðan uppfylli bæði kröfur og væntingar.
Helstu sérverkefni
Sérverkefnadeild Sólar sinnir fjölbreyttum verkefnum sem krefjast sérþekkingar, sérhæfðs búnaðar og reynslumikils starfsfólks.
Helstu verkefni eru meðal annars:
• framkvæmda og afhendingarþrif
• mygluhreinsun og hreinsun eftir mygluframkvæmdir
• djúphreinsun teppa og húsgagna
• gólfviðhald og bónun
• flísahreinsun og önnur yfirborðsþrif
• gluggaþvottur
• háþrýstiþvottur
Þessi verkefni eru oft umfangsmeiri eða tæknilega flóknari en almenn dagleg ræsting og krefjast því sérhæfðrar þekkingar og búnaðar.
Komdu á básinn okkar á verk og vit og kynntu þér þjónustuna okkar



