Gólf
Gólf, teppahreinsun, steinteppahreinsun, bónhreinsun, bón og fleira
Kjörin lausn til að hreinsa erfið óhreinindi á yfirborðum
Sýruþvottur gólfa er kjörin lausn til að hreinsa erfið yfirborð eins og stein og flísar. Aðferðin fjarlægir harðvítug óhreinindi og kalk útfellingar, sem endurvekur náttúrulegt útlit gólfsins á áhrifaríkan hátt.
Fjarlæging á fitu og uppsöfnuðum óhreinindum
Við bjóðum upp á hreinsun flísa og náttúrusteins sem fjarlægir fitu og önnur uppsöfnuð óhreinindi.
Djúphreinsun sem endurheimtar fegurð steinteppa
Viðhald og hreinsun steinteppa með háþróaðri tækni sem varðveitir náttúrulegan lit og áferð á teppinu. Djúphreinsun sem endurheimtir fegurð steinteppa án þess að skemma yfirborðið.
Aðferð sem tryggir hreint og ferskt teppi
Teppahreinsun fyrir fyrirtæki, stofnanir og húsfélög. Með djúphreinsun á teppi er ryk, blettir og uppsöfnuð óhreinindi fjarlægt. Við notum aðferðir sem tryggja hrein og fersk teppi.
Bónun og bónleysingu á vínyl- og línóleumdúkum þar sem dúkurinn fær fallegan gljáa
Við sérhæfum okkur í bónun og bónleysingu á vínyl- og línóleumdúkum. Með bónun er yfirborð dúkanna varið og fær fallegan gljáa sem auðveldar þrif og eykur endingu. Ef þörf er á að endurnýja bónhúðina, fjarlægjum við gömlu bónhúðina með bónleysingu og endurbónum gólfefnið fyrir ferskt og nýtt útlit. Við bjóðum uppá að koma á staðinn og meta þörf fyrir hvert verkefni.