Sérþrif
Hreingerningar, iðnaðar og nýbyggingarþrif ásamt öllum sértækum þrifum
Tryggjum hreint og heilsusamlegt umhverfi
Eftir að mygluvandamál hefur verið leyst sjáum við um að hreinsa yfirborð á áhrifaríkan hátt. Þjónustan okkar tryggir hreint og heilsusamlegt umhverfi
Hreinsun sem fjarlægir bakteríur, vírusa og önnur óæskileg efni
Sótthreinsunarþjónustan okkar fjarlægir bakteríur, vírusa og önnur óæskileg efni. Við sköpum öruggara og hreinna rými fyrir þig og þína.
Við tryggjum hreint og öruggt umhverfi þar sem matvæli eru meðhöndluð
Þar sem matvæli eru elduð og framleidd í miklu magni getur myndast mikil fita og óhreinindi sem reynst getur erfitt að ná. Við tryggjum hreint og öruggt umhverfi sem uppfyllir allar kröfur.
Þrif sem tryggja gott og heilsusamlegt vinnuumhverfi
Loft- og loftstokkar eru algengir staðir þar sem ryk, óhreinindi eða mygla getur myndast. Til að tryggja góð loftgæði og heilsusamlegt vinnuumhverfi er mikilvægt að huga að þessum þrifum. Þrifin fela í sér hreinsun á loftum og loftþökum innan bygginga, hvort sem um ræðir skrifstofur eða atvinnuhúsnæði.
Djúphreinsun sem tryggir að vöruhúsið sé hreint og öruggt fyrir notkun
Á svæðum sem þessum þar sem mikið af vörum eru geymdar er mikilvægt að þrífa fleti með réttum efnum til að koma í veg fyrir ryksöfnun eða önnur óhreinindi sem geta haft áhrif á gæði vörunnar. Við bjóðum upp á djúphreinsun sem tryggir að vöruhúsið sé hreint og öruggt fyrir notkun.
Flutningsþrif til að létta þér lífið
Þrífum allt hátt og lágt og léttum þér lífið við þrif flutninga. Við sjáum til þess að vinnustaðurinn eða atvinnuhúsnæðið verði hreint til afhendingar.
Hreingerning eftir iðnaðarvinnu til að koma öllu í toppstand
Hreingerning eftir iðnað getur reynst erfið en sérverkefnadeild Sólar tekur að sér að koma öllu í toppstand. Tökum að okkur að hreingera nýbyggingar hvort um sé að ræða stakir íbúðir eða fjölbýli. Djúpþrif eftir iðnað eða breytingar hjá fyrirtækjum, stofnunum, húsfélögum og byggingaðilum.